Það var mjög gaman hjá nemendum tíunda bekkjar á miðvikudagskvöldið þegar þeir héldu árshátíð sína, sem ekki var unnt að halda fyrir páska.
Krakkarnir sáu sjálfir um allan undirbúning. Stofan var færð í hátíðarbúning og í matreiðslustofu skólans reiddur nemendur fram hátíðarmat sem sannarlega féll í kramið.
Forréttirnir voru þrír; Brucettur, annars vegar með kalkún, hins vegar með skinku. Með fylgdi síðan beikonvafin daðla.
Aðalrétturinn var glæsileg nautalund með heimagerði Bernaise sósu, Hasselback kartöflum og grænmeti, steiktu og soðnu.
Eftirréttirnir voru þrír; heimagerður ís, margenstoppar og frönsk súkkulaðikaka.
Eftir kvöldverðinn hófst heilmikið stuð, verðlaunaafhendingar og sýnt var kennaragrín sem krakkarnir unnu og sýndu starfsfólk skólans eins og það kemur þeim fyrir sjónir.
Þetta þótti sérlega vel heppnuð árshátíð hjá frábærum krökkum.