Starfsfólk Glerárskóla hefur haft í nægu að snúast í vikunni við að skipuleggja kennslu, taka á móti aðföngum, flokka kennslugögn og funda um skipulagið og skólastarfið í vetur.
Auðvita setur faraldurinn svip sinn á starfið, bæði þrif, sótthreinsun og sóttvarnir. Grunnskólakennarar á Akureyri funduðu eftir hádegi í dag, auðvita í gegnum fjarfundabúnað. Umsjónarkennarar hvers árgangs á yngsta- og miðstigi funduðu sín á milli um kennsluna í vetur og skiptust á hugmyndum. Annar háttur var hafður á hjá kennurum á unglingastigi, þar funduðu fagkennarar skólanna sín á milli.
Foreldrar og forráðamenn nemenda fengu í gær sent rafrænt fréttabréf skólans (sem finna má á heimasíðu skólans glerarskoli.is) þar eru mikilvægar upplýsingar varðandi skólasetninguna á mánudaginn, upphaf skólastarfsins, framkvæmdir á skólalóðinni og sitthvað fleira. Mikilvægt er að kynna sér vel það sem þar kemur fram.