Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Allt of heitt til að vera inni

Við þökkum fyrir blíðuna, sólskinið og hitann. Það getur reyndar verið pínu erfitt að ná einbeitingu yfir skólaverkefnunum í skólastofunni, jafnvel þótt allir gluggar séu opnir upp á gátt. Þá er bara eitt til ráða, að færa sig út.
Nemendur í fimmta bekk fóru með kennara sínum út í blíðuna og leystu flókin verkefni. Sumir nutu þess að vera í sólinni á meðan aðrir leituðu skjóls í skugganum þar hann var að finna.