Það var sérlega skemmtilegt að fylgjast með nemendum mæta í skólann í morgun. Nemendafélagið stóð fyrir uppákomu sem snerist að því að mæta í skólann með allt annað en skólatösku. Þá kom í ljós að hugarflugi nemenda eru engin takmörk sett.
Nemandi sást koma með dótið sitt í kattarbúri, annar í skúringafötu, þriðji í brauðrist og einn dró á eftir sér ruslatunnu. Einhver var með bækurnar sínar í morgunkornsboxi, ferðatöskur voru vinsælar. Einn var með tölvukassa í fanginu og annar bar ísskáp fullan af skóladóti.
Þetta uppátæki þótti mjög skemmtilegt og á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra nemendur með „skólatöskurnar“ sínar.



