Það var heldur betur stuð upp við Rósenborg í dag þegar tveir nemendur á unglingastigi tóku sig til og stjórnuðu Zumba-leikfimi í góða veðrinu. Þetta var frábær leið til að ljúka góðum skóladegi.
Krakkarnir á miðstigi kepptu sín á milli í frjálsum íþróttum; spjótkasti, kúluvarpi, langstökki og hlaupum. Flestir, ef ekki allir, bættu sinn persónulega árangur!