Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Ævintýri fram undan hjá 7. bekk

Þessir skemmtilegu 7. bekkingar fóru í Hrútafjörðinn í morgun en þau munum dvelja í skólabúðunum að Reykjum fram á föstudag. Þar læra þau ýmislegt, meðal annars að búa fjarri foreldrahúsum á ókunnugum stað, sjá um sig, hafa reglu á fötum og farangri sínum og halda herberginu sínu snyrtilegu. Við þetta njóta nemendurnir tilsagnar kennara sinna og starfsfólki skólabúðanna.

Starfið í skólabúðunum beinist í öllum aðalatriðum að sömu markmiðum og starfið í almennum grunnskólum. Þar er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi uppeldis- og félagsleg markmið og að því stefnt:

– að auka samstöðu og efla samvinnu milli kennara og nemenda
– að auka félagslega aðlögun nemenda
– að þroska sjálfstæði nemenda
– að nemendur fáist við áður óþekkt viðfangsefni
– að nemendur kynnist nýju umhverfi og ólíkum lífsmáta
– að örva löngun nemenda til að athuga og rannsaka umhverfið og komast að niðurstöðu
– að auka athyglisgáfu nemenda

Þetta verður sannarlega skemmtileg upplifun fyrir krakkana.