Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, fór fram í Brekkuskóla í dag. Það var mat dómara og gesta að sjaldan hafi gæði upplestursins verið jafn mikill og mikið jafnræði var meðal keppenda.
Friðrik og Starri Ólafur, keppendur Glerárskóla, stóðu sig með afbrigðum vel, voru góðar fyrirmyndir og skólanum sínum til sóma.
Friðrik hafnaði í þriðja sæti í keppninni, en sigurvegari var Hákon Geir úr Lundarskóla og Birgitta Ósk úr Brekkuskóla hafnaði í öru sæti.
Á meðfylgjandi myndum má annars vegar sjá allan hópinn og hins vegar lesarana sem höfnuðu í þremur efstu sætunum.



