Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Að vera læs á upplýsingar

Skúli B. Geirdal fjölmiðlafræðingur og verkefnisstjóri hjá Fjölmiðlanefnd heimsótti nemendur sjötta bekkjar í dag og fór með þeim yfir mikilvægi þess að vera læs á upplýsingar og miðla í nútíma samfélagi.

Hann útskýrði Hvernig algóritmar samfélagsmiðlanna virka og hvaða áhrif þeir geta haft á skoðanamyndun okkar og heimsmynd. Hann ræddi hvað hafa þarf í huga varðandi samskipti á netinu, áreiti frá ókunnugum og deilingu nektarmynda, svo eitthvað sé nefnt.

Erindi hans byggir á niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu.

Við minnum foreldra á fundinn sem Skúli er með í Síðuskóla í kvöld en þar fer hann yfir þessi mál með foreldrum grunnskólabarna. Fundurinn hefst klukkan 20.00.