Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Sérkennari

Sérkennari sér um kennslu sem felur í sér breytingar, miðað við bekkjarnámskrá, á námsmarkmiðum, námsefni, námsaðstæðum og/eða kennsluaðferðum. Sérkennsla er hugsuðu fyrir alla nemendur á grunnskólaaldri sem á þurfa að halda.

Sérkennari:

  • er hluti af stoðteymi skólans með sérkennara, iðjuþjálfa og námsráðgjafa
  • kennir nemendum einstaklingslega, í pörum, í smærri hópum eða í heimabekk eftir þörfum hverju sinni
  • aðstoðar umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa í samstarfi við foreldra og nemendur sem byggja á greiningum og aðalnámskrá grunnskóla.
  • veitir kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn
  • er í samstarfi við kennara vegna námserfiðleika einstakra nemenda
  • er í nánu samstarfi með foreldrum þegar það á við. Auk þess að hafa samráð og samstarf með öðrum sérfræðingum innan og utan skólans og vísa málum nemenda til þeirra eftir því sem við á.
  • greinir námsþarfir og leitar eftir sérfræðilegri greiningu utan skólans eftir þörfum.
  • útbýr kennslugögn og aflar nýrra í samræmi við þarfir einstakra nemanda.
  • situr í nemendarverndarráði og kemur að ákvarðanatöku varðandi nemendur.
  • er teymisstjóri og hefur umsjón með samstarfi milli þeirra sem að nemandanum koma s.s. foreldra, umsjónarkennara, sálfræðingi og kennsluráðgjafa Fræðslusviðs og annarra aðila. Kallar saman teymisfundi eftir þörfum.
  • aflar sér endurmenntunar í samráði við stjórnendur, sækir námskeið til að viðhalda þekkingu og fylgjast með nýjungum.
  • er þátttakandi í markvissri nýbreytni og þróunarstarfi