Nú er svo komið að fjórir bekkir í Glerárskóla eru komnir í sóttkví og rúmlega 20 starfsmenn. Af þeim sökum verða 9. og 10. bekkur í leyfi frá skóla út nýbyrjaða viku.
Við hvetjum alla til að huga að persónulegum sóttvörnum, vera vakandi fyrir einkennum og fara í sýnatöku geri þau vart við sig.