Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Á morgun, þriðjudaginn 12. mars, er nemendum í Glerárskóla boðið í Hlíðarfjall.  Sumir fara á bretti, aðrir á svigskíði, enn aðrir á gönguskíði og svo mega nemendur taka með sér snjóþotur og sleða. Mikilvægt er að merkja bæði þotur og sleða.

Gönguferð verður í boði fyrir þá sem það kjósa.

Nú þegar hefur skráning á búnaði farið fram. Ekki er hægt að lána búnað til nemenda í 1.- 4. bekk og þeir nemendur sem eiga búnað geta ekki fengið lánaðan búnað í fjallinu.

Ath. ekki er boðið upp á skíðakennslu.

Þær lyftur sem verða opnar eru: Töfrateppið, Hólabraut, Hjallabraut og Fjarkinn.

Allir nemendur fara heim með rútum um hádegisbil.

Samvalsgreinar eru kenndar þennan dag.

Hádegismatur verður snæddur í skólanum.

Vakin er athygli á því að veður og færi geta breyst á skömmum tíma og verða allir að taka mið

af því.

Mætingar, heimkoma og skólalok:

  • 1 – 4. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall um kl. 08:40 og til baka 11:15, hádegismatur og síðan skólalok (frístund) kl. 12:00
  • 5 – 7. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall um kl. 08:30 og til bakakl. 11:30, hádegismatur og síðan skólalok kl. 12:00.
  • 8 – 10. bekkur: Mæting í Glerárskóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall um kl. 08:20 og til bakakl. 11:45, hádegismatur og síðan skólalok. Valgreinar hjá þeim sem eru í samvali á miðvikudögum.

Nemendur þurfa að koma klæddir skv. veðri. Allir þurfa að vera vel klæddir. Hlífðarbuxur,  húfa, vettlingar (auka í tösku) og hjálmar mega ekki gleymast heima.

Muna þarf eftir nesti. Mælum með kakói á brúsa og samloku. Nemendur þurfa að taka allar umbúðir með sér heim aftur.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá umsjónarkennurum, ritara eða stjórnendum.