Þann 15. maí var haldinn fundur í Háskólanum á Akureyri um mikilvægi samvinnu foreldra fyrir velferð barna. Um var að ræða fræðslufund fyrir foreldra og forsjáraðila barna á vegum landssamtakanna Heimilis og skóla fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Fyrir þá sem ekki komust á fundinn, er hægt að horfa á erindin hér:
Upptaka af fundi í Árborg með enskum texta.
Upptaka af fundi í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum táknmálstúlkaður.
Á fundinum var einnig rætt Farsældarsáttmálann og hvað það er sem foreldrar/forráðamenn vilja sjá í honum. Fyrir þá sem vilja koma með athugasemdir eða ábendingar þá er hægt að skrá það hér.
Við bendum einnig á áhugamannahóp um foreldrastarf á Facebook og hlekki Heimilis og skóla.