Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Líffæri krufin!

Nemendur í níunda bekk eru að læra um líkamann, þetta flókna furðuverk, þessa dagana. Um daginn fengu þau einstakt tækifæri til þess að skoða hvernig líffærin eru byggð upp og hvernig þau virka.
 
Kennarinn mætti með lungu hjörtu og nýru úr svínum. Verkefnið var að kryfja líffærin og skoða uppbyggingu þeirra. Krakkarnir unnu í hópum og var gert að taka upp myndband þar sem verkferli þeirra var skrásett en krakkarnir áttu meðal annars að sýna æðakerfi hjartans og gera grein fyrir því hvernig það virkar. Þau áttu einnig að útskýra hlutverk lungnanna og sýna að barkinn leiðir innöndunarloft til lungnanna og hvernig þau þenjast út við öndun.
 
Hugsanlega verður þessi kennslustund til þess að einhver nemandinn leggi fyrir sig læknis- eða hjúkrunarfræði, já eða stefni að því að verða meinafræðingur. Þessum krökkum standa allar dyr galopnar og framtíðin er full af tækifærum!