Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Netskákmót fyrir grunnskólanemendur

Skáksamband Íslands, í samvinnu við grunnskóla á Norðurlandi eystra, blæs til netskákmóta fyrir grunnskólanemendur svæðisins í samkomubanninu. Mótin verða alla fimmtudaga og hefjast klukkan 16:30 og standa í klukkustund.

Fyrsta mótið er nú á fimmtudaginn kemur 2. apríl kl. 16:30. Teflt verður á chess.com.

Einfalt er að taka þátt í mótinu og eftir hverja skák byrjar ný skák, gegn nýjum andstæðingi. Einungis þarf að klikka á „next match“ þegar skákin er búin.

Til að taka þátt þarf að fara í gegnum fáein einföld skref. Best er að klára skref 1 og 2 sem fyrst.

  1. Búa til aðgang á chess.com(ef aðgangur er ekki til staðar nú þegar). Aðgangur er ókeypis og einfalt að búa til aðgang.
  2. Gerast meðlimur í hópnum „Skólaskák Norðurland eystra
  3. Skrá sig á mótin sem er hægt að gera frá 60 mínútum áður en þau hefjast. Hér er tengill á fyrsta mótið.

Það þarf að ýta á „join“ og svo bara bíða eftir að fyrsta skák byrjar klukkan nákvæmlega 16:30

Til að tefla í mótinu þarf að notast við fartölvu eða borðtölvu, því chess.com appið virkar ekki í mótum.

Hér má sjá almennar leiðbeiningar um hvernig má skrá sig á chess.com

Mótin verða alla fimmtudaga næstu vikurnar og hefjast alltaf klukkan 16:30. Að ofan er tengill á fyrsta mótið en til að vera með í mótum á næstunni þarf einfaldlega að mæta á chess.com frá 15:30 á fimmtudögum og skrá sig í mótið í gegnum hópinn „Skólaskák Norðurland eystra“.

Öllum spurningum er svarað hér eða í síma 863-7562,

Kveðja, Stefán Bergsson æskulýðsfulltrúi Skáksambands Íslands.