Til upplýsingar
Um leið og Covit-19 veiran greindist hérlendis greip Glerárskóli til margvíslegra aðgerða samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis, Almannavarna og Embætti Landlæknis.
- Kennarar ræddu við nemendur sína um nauðsyn handþvottar og mikilvægi þess að forðast óþarfa snertingu
- Handspritt var sett í allar kennslustofur skólans
- Sjálfsafgreiðslu var hætt í mötuneyti skólans. Nemendur fá nú skammtað á diska sína, bæði mat og meðlæti. Hellt er glös fyrir nemendur og þeim afhent hnífapör
- Við ræstingar er lögð áhersla á að halda flötum á borð við dyrahandföng, lyklaborð og fleiru hreinum með reglulegri sprittun
Erfitt getur verið að tala við börn um veiruna og viðbrögð við henni. Því bendum við á ágæta grein á visir.is sem gæti komið að góðu gagni.
Enn fremur fylgjumst við vel með nýjum upplýsingum og ráðleggingum sem birtast á vef Almannavarna og vef Landlæknis.