Skrifað 30. 05 2024
Krakkarnir í tíunda bekk skrifuðu nýjan kafla í sögu skólans í dag þegar fram fór árlegur körfuknattleiksleikur milli nemenda bekkjarins og starfsmanna skólans. Til þessa hafa starfsmenn alltaf unnið þennan mikilvæga leik og oft með miklum mun.
Spilaðar voru tvisvar sinnum tíu mínútur og frá upphafi var ljóst að um mikinn baráttuleik yrði að ræða. Starfsmenn skoruðu fyrstu stiginn og leikurinn var í járnum fyrstu mínúturnar eða þar til nemendur sigu fram úr og þegar lokaflautið gall var staðan 32–9 fyrir nemendur.