Nemendur í 10. bekk selja nú jólamerkimiða með myndum eftir nemendur skólans. Þessi fjáröflun byggir á gamalli hefð í skólanum þar sem efnt er til samkeppni meðal nemenda skólans um jólamynd. Nemendur í 10. bekk velja 8 myndir sem prentaðar eru á merkimiða. Pakki með 8 merkimiðum kostar 800 kr.
10. bekkur vill þakka þeim nemendum sem tóku þátt og sérstakar þakkir fær Aðlabjörg Ólafsdóttir myndmenntakennari fyrir aðstoðina.
Á myndasíðu skólans eru myndir frá því að nemendur 10. bekkjar voru að pakka merkimiðunum inn. Einnig eru myndir af þeim nemendum sem teiknuðu myndirnar sem valdar voru.