Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

„Vertu þú sjálfur“ – Fyrirlestur á vegum Samtaka

Kæru foreldrar barna á unglingastigi
Samtaka er búið að fá Akureyringinn Sigga Gunnars, Útvarpsmann á K-100, til að koma og vera með fyrirlestur fyrir 8. – 10. bekk í öllum grunnskólunum á Akureyri dagana 17. og 18. maí næstkomandi.
Í tilefni þess höfum við ákveðið í samstarfi við Sigga Gunnars að bjóða einnig foreldrum upp á fyrirlestur með honum og verður hann haldinn í Giljaskóla þriðjudagskvöldið 17. maí klukkan 20:00
Fyrirlesturinn ber heitið „Vertu þú sjálfur“ og fjallar um mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig, læra á sjálfan sig og samþykkja sjálfan sig og fer Siggi yfir sína sögu og tengir hana við almennar hugleiðingar.
Umsögn frá Pétri Guðjóns viðburðastjóra VMA um fyrirlesturinn:
Fyrirlesturinn var sérlega lifandi og einlægur. Uppbyggingin var ákvaflega forvitnileg þar sem þú skynjaðir strax að áhugaverð saga var sögð. Saga sem kemur við svo marga varðandi mannleg samskipti og líðan. Eftir að hafa setið aftarlega í salnum varð ég að færa mig fremst því það er sannarlega óvenjulegt að hafa fullan sal af framhaldsskólakrökkum og það var ekkert skvaldur og varla nokkur að skoða símann sinn. Þegar ég svo horfði framan í hópinn sem hlustaði á Sigga sá ég eftirvæntingu, áhuga og jafnvel gleði. Kannski var ástæða gleðinnar sú að þessir ungu og ómótuðu einstaklingar fundu von hjá sér við að hlusta á Sigga Gunnars. Vertu þú sjálfur er frábær fyrirlestur.
Vonumst til að sjá sem flesta
 Fyrir hönd Samtaka,
  Monika Stefánsdóttir, varaformaður