Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Árshátíð Glerárskóla 2016

Allir velkomnir

Miðvikudaginn  16. mars eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla.

Kennsla er til kl. 13:15.  Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30.  Hvor sýning tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund.  Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri. Við mælum ekki með því að foreldrar taki ungabörn með sér á sýningarnar.

Kaffihús nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra verður starfrækt á milli sýninga eða kl.18:30 -19:30 á neðri hæð skólahússins, í matsal.  Þar verða til sölu drykkir og brauð af hlaðborði. Kaffi og meðlæti er á kr. 800, en kr. 400 fyrir 6 ára og yngri.   Hagnaður kaffihússins fer allur í ferðasjóð 10. bekkjar.

Fimmtudaginn 17. mars er ein árshátíðarsýning og Árshátíðarball Glerárskóla.

Kennsla er til kl. 13:15.  Sýning er kl. 15:30. Verð á sýningu er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri.

Kaffihús nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra verður starfrækt kl. 17:00 – 19:00 á neðri hæð skólahússins, í matsal.  Þar verða til sölu drykkir og brauð af hlaðborði. Kaffi og meðlæti er á kr. 800, en kr. 400 fyrir 6 ára og yngri. Hagnaður kaffihússins fer allur í ferðasjóð 10. bekkjar.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 1.- 4. bekk hefst kl. 17:45 í íþróttahúsi og stendur til kl.19:00. Ókeypis er á ballið. Bland í poka kostar 250 kr. og gos kr. 250. Foreldrar athugið að kaffihúsið er opið á þessum tíma.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 5. – 10. bekk hefst kl. 20:00. Því lýkur hjá 5.-6. bekk kl. 21:30,  7.bekk kl. 22:00 og hjá 8. -10. bekk kl. 23:30. Verð fyrir 5. – 7. bekk er kr. 700 en kr. 1000 fyrir 8.-10. bekk.

Nemendur í 5. bekk mega velja á hvort ballið þeir fara.  Munið snyrtilegan klæðnað !

Allur ágóði sýninga og árshátíðar fer í að greiða niður skólaferðalög og vettvangsferðir nemenda.

Viljum benda forráðamönnum á að meðan á sýningu stendur er óæskilegt að vera með ráp inn og út út íþróttasal. Sýnum nemendum virðingu og fylgjumst með sýningunni af áhuga 🙂

Föstudaginn 18. mars er skóladagur í Glerárskóla.

Kennsla hefst kl.10:00 og er samkvæmt stundarskrá eftir það.

Að skóla loknum á föstudeginum hefst páskafrí nemenda.

Kennsla hefst að loknu páskafríi  þriðjudaginn 29. mars 2016 samkvæmt stundarskrá.

Árshátíðaratriði 2016:

1. bekkur: Söngur

3. bekkur: Dans

5. bekkur: Leikverk – Heilsubælið

7. bekkur: Leikverk – Tímaflakk

9. bekkur: Leiksýning – Dýrin í Hálsaskógi